Leitaðu
Smelltu á flokk

FH16 

22. febrúar 2012

Skoða PDF: Volvo FH16 bæklingur

Volvo FH16 er einn sterkasti og þrautseigasti flutningabíll heims.

Volvo FH16 er endanlegt val þeirra sem stunda vöruflutninga í miklu magni á löngum leiðum enda er hér um að ræða einn sterkasta og þrautseigasta flutningabíll heims. FH16, með sinni gríðaröflugu og ákveðnu 16 lítra vél, sem er allt að 660 hestöflum, er hárrétt val fyrir kröfuharða notendur, sem leggja höfuðáherslu á rekstrarhagkvæmni, seiglu og þægindi í langferðum, þar sem oft erfiðar aðstæður geta tekið á. Sem dæmi um öryggi Volvo hefur nýtt og enn þróaðra hemlakerfi FH16 stytt hemlunarvegalengd bílsins um 15%. Nýr og enn fullkomnari gírkassi (I-shift) er til í þremur útgáfum, þar sem hver og ein tekur mið af burðargetu bílsins, umferðarþunga og aðstæðum hverju sinni. Útkoman er hagkvæmari orkunýting, þægilegri akstur og minni mengun, í samræmi við kröfur Evrópuríkja, sem eru þær ströngustu í heimi.

Lestu ítarefnið

Lesa ítarefni

Nýir Volvo vörubílar


Volvo uppfyllir þarfir þínar fyrir traustan og skilvirkan rekstur með breiðu framboði vörubíla. Volvo vörubílar njóta virðingar og mikillar markaðshlutdeildar um allan heim vegna gæða sinna, áreiðanleika, rekstrarhagkvæmni og endingar. Notendur treysta Volvo. Komdu og ræddu við söluráðgjafa Brimborgar á atvinnutækjasviði. Veldu nýjan Volvo vörubíl frá Brimborg.

Notaðir vörubílar

Smelltu hér og skoðaðu notaða vörubíla sem eru í boði hjá Brimborg, Bíldshöfða 6.

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli