22. febrúar 2012
Volvo vörubílar
|
fim. 24. feb. 2011
Ánægður viðskiptavinur kaupir þúsundasta Volvo vörubílinn
Anders Lindblad, forstjóri Volvo Suður-Afríku, afhenti Derick Reinhardt mynd með nokkrum bautasteinum úr sögu Volvo fyrir hönd forstjóra Volvo Trucks, Staffan Jufors.
Víða um heim eru vörubílar mikilvægur hluti af stoðkerfi atvinnulífsins. Landflutningar eru ekki bara algengir á Íslandi heldur reiða mörg stærstu hagkerfi landsins sig mikið á landflutninga, og þá skiptir litlu hvort litið er til Bandaríkjanna, Evrópu eða álfunnar sunnan við Evrópu.
Flutningageirinn hefur liðið fyrir hagkvæmni þrátt fyrir að mikil aukning sé víða í landflutningum. Með öðrum orðum finna fjárfestar ekki fyrir því að flutningafyrirtækin skili arði þó viðskiptin aukist stöðugt. Derick Reinhardt komst að þessu fyrir tíu árum síðan en hans niðurstaða var sú að ekki væri hyggilegt að gera meira af því sama í slíkri stöðu. Hann skipti því öllum vörubílaflotanum sínum út og keypti
Volvo FM og
Volvo FH vörubíla í staðinn.
Risastór floti
Það er mikið í húfi fyrir
Reinhardt en
Volvo vörubílar hafa staðist væntingar hans og gott betur. Í tíu ár hefur Reinhardt keypt Volvo vörubíla og þúsundasta Volvo bílinn keypti hann í janúar. Vörubíllinn fékk hann afhentan við hátíðlega athöfn enda kannski ekki svo oft að sami viðskiptavinurinn fær þúsundasta bílinn afhentan, og reyndar er fyrirtæki Reinhardts það fyrsta í heiminum í eigu einstaklings sem nær þeim áfanga að kaupa þúsund Volvo vörubíla.
Reinhardt tók ákvörðunina að vandlega athuguðu máli, eins og vera ber. Hann fékk fyrst tilboð í flotann og tilboði fylgdi líka heimsókn í
Volvo vörubílaverksmiðjuna í Svíþjóð. Þar gat hann kynnt sér framleiðsluferlið og hitt verkfræðinga og hönnuði sem útskýrðu fyrir honum hvers vegna Volvo vörubílar væru svona hagkvæmir.
Reinhardt tók sérstaklega eftir því að eigin þyngd vörubílanna var lág en sömuleiðis loftmótstaðan sem skiptir verulegu máli þegar kemur að eldsneytisnotkun. Lykilatriði þar er svefnhús bílanna, sem getur verið erfitt að koma haganlega fyrir, en þau eru bráðnauðsynleg í víðáttumiklum löndum eins og Suður-Afríku.
Hagkvæmni með tækni og reynslu
Floti Reinhard Group telur í dag 270 Volvo vörubíla. Flestir eru þeir af gerðinni Volvo FH, 440 hestöfl, með svefnhúsi, VEB mótorbremsu og I-Shift sjálfskiptum gírkassa en hann er lykilatriði í að draga úr eldsneytisnotkun þar sem reyndir bílstjórar hafa ríkari stjórn á skiptingum og geta þannig dregið úr álagi á vélar, driflínu og auðvitað dregið úr eldsneytisnotkun.
Vörubílar Reinhardst draga dráttarvagna sem eru útbúnir hliðarsturtum og flytja þeir kol og önnur laus efni sem hægt er að haugsetja.