Volvo FMX hefur hitt í mark í flokki vörubifreiða hjá jarðvinnu- og byggingarverktökum. Frá því að hann var kynntur til sögunnar í apríl á síðasta ári hafa verið seldir 5.000 slíkir vörubílar. Má segja að hinn nýi Volvo FMX undirgangist nú ákveðið reynslutímabil því nú er hann notaður í ýmis erfið jarðvinnuverkefni víðsvegar í Evrópu.
„Sala á Volvo FMX hafa verið langt umfram okkar væntingar. Eftir aðeins tvo mánuði, höfðum við þegar selt helming þess magns FMX sem við ráðgerðum fyrir árið 2011. Þessi gríðarlega eftirspurn er staðfesting á því að það hafi tekist að uppfylla þarfir viðskiptavina okkar og náð að aðlaga vörubifreiðina að þeirra erfiða og krefjandi vinnuumhverfi“ segir Claes Nilsson, forstjóri Volvo European Trucks.
Vinna við lengstu jarðgöng í heimi eru nú í gangi við landamærin á milli Sviss og Ítalíu. Þegar því verkefni er lokið verða göngin 57 km að lengd. Í þessu stóra verkefni ekur Danni vörubílstjóri nýja Volvo FMX á vegi sem er að hluta til með allt að 22 % bröttum brekkum og hann nýtur þess að vera í vinnunni á nýja FMX vörubílnum.
„Ég er ánægður með FMX-inn minn. Hann er tilvalinn fyrir slík erfið og krefjandi verkefni. Ég kann að meta þægindin í ökumannshúsinu og líka sérstaklega nýja gerð baksýnisspegla sem virka vel“ segir Danni.
Göngin sem verða einungis ætluð fyrir umferð járnbrautalesta munu verða mikilvægur hluti af flutningakeðju sem tengist járnbrautaneti Norður-og Suður-Evrópu og stórum skipahöfnum í Rotterdam og Genoa. Framkvæmdir hófust í lok níunda áratugarins og verða opnuð fyrir umferð árið 2017. Um 300 há-hraða lestar munu daglega fara um göngin.
Hraðinn á bornum í gegnum fjallið er ca. 25 metrar á dag. Eitt af helstu viðfangsefnum þessa stóra verkefnisins er að fjarlægja allt að 13,3 milljónir rúmmetra af efni sem er losað út úr göngunum. Verður efnið haugsett á pöllum og nota til að forma og mýkja útlínu í landslaginu í nánasta umhverfi gangnanna í Ölpunum.
Á verktíma lengsta kafla gangnanna sem er 20 km kafli á milli Camorino og Venzia, hafa Beffa Trasport og þeirra 32 starfsmenn haft með efnisflutningana að gera. Félagið er að nota allan sinn flota af 22 Volvo vörubílum í verkefnið. Það er í þessu verkefni sem Volvo FMX 6x4 þarf virkilega að sýna hvað í honum býr.
„Við urðum að ákveða fyrir tíu árum síðan hvað tegund vörubíla við ættum að nota í þetta erfiða verkefni. Eftir vandlega íhugun völdum við Volvo“ segir Renato Beffa, eigandi Beffa Trasport. „Volvo vörubílar eru mjög öflugir og byggðir á sterkri grind. Við erum sérstaklega ánægðir með nýju FMX, en þeir hafa framúrskarandi ökumannshús. Búnaður og þægindi eru til fyrirmyndar, auðvelt er að ná til gírstangarinnar og allra annarra mikilvægra stjórntækja.“
Unnið er á vörubifreiðunum á tveimur vöktum en það er 40 km hringur til og frá göngum að losunarstað efnis.
Þetta þýðir mjög krefjandi vinnuaðstæður þar sem burðar og afkastageta vörubifreiðar er nýtt til hins ýtrasta stóran hluta hvers dags.
Á hverri vakt er flutt allt að 2.200 tonnum af mulnu grjóti. Með heildarþunga vörubifreiðar nálægt 40 tonnum er mjög mikilvægt að vörubifreiðin sé fær um að sinna erfiðum aðstæðum, miklum bratta og ekki hjálpar til þegar rignir og/eða snjóar en þær aðstæður gera alla flutninga enn erfiðari viðfangs.
Renato Beffa hefur nú þegar pantað annan Volvo FMX, og hann er ekki eini landflutninga rekstraraðilinn í Sviss sem er að gera slíkt hið sama. Volvo FMX er nú þegar með meira en 15% markaðshlutdeild í heildarsölu vörubifreiða í landinu.
Sjá kvikmynd um smíði göng er hér: (hlekkur á YouTube Volvo Trucks 'rás)
Volvo uppfyllir þarfir þínar fyrir traustan og skilvirkan rekstur með breiðu framboði vörubíla. Volvo vörubílar njóta virðingar og mikillar markaðshlutdeildar um allan heim vegna gæða sinna, áreiðanleika, rekstrarhagkvæmni og endingar. Notendur treysta Volvo. Komdu og ræddu við söluráðgjafa Brimborgar á atvinnutækjasviði. Veldu nýjan Volvo vörubíl frá Brimborg.