Leitaðu

Smelltu á flokk

Lestu fréttirnar 

22. febrúar 2012
Volvo vörubílar | fös. 22. júl. 2011

Fjórir nýir Volvo FH dráttarbílar til Eimskip Flytjanda

Á myndinni sem tekin var við afhendingu á einum af Volvo FH vörubifreiðunum eru frá vinstri þeir Már Þorvaldsson frá Flytjanda og Ólafur Árnason frá Brimborg
Flytjandi fékk nú nýverið afhenta fjóra nýja Volvo FH 6x4T dráttarbíla sem eru 460 hö. Bílarnir eru með 13 lítra Volvo vélum sem eru eins og áður sagði 460 hestöfl og eru vélarnar að toga 2300 Nm. Þessir Volvo dráttarbílar eru vel útbúnir enda er staðalbúnaður í vörubifreiðum frá Volvo Truck ríkulegur þar sem eitt af aðalsmerkjum Volvo Truck eru þægindi og öryggi fyrir ökumanninn. Þar leikur I-Shift gírkassinn stórt hlutverk því eins og nafngiftin gefur til kynna þá sér gírkassinn um gírskiptingar fyrir ökumanninn. I-Shift gírkassinn er 12 gíra beinskiptur gírkassi með gírskiptibúnaði sem gerir það að verkum að bestu eiginleikar beinskipts og sjálskipts gírkassa eru sameinaðir í einn gírkassa. Það að hafa úr 12 gírum að velja og hversu fljótur gírkassinn er að skipta um gíra gerir það að verkum að jafnvel við erfiðustu skilyrði er drifbúnaðurinn að skila togi vélarinnar mjög vel. Með I-Shift gríkassanum getur bílstjórinn haldið einbeitingunni við aksturinn og umferðinni í kring án þess að hafa áhyggjur af því í hvaða gír vörubifreiðin er hverju sinni. Hinsvegar getur bílstjórinn líka valið þann gír sem hann vill í manual ham. I-Shift gírkassinn hjálpar einnig til þegar kemur að hráolíueyðslu en í því samandi er talað um allt að 5% minni eyðslu en ef um sambærilegan bíl væri að ræða með beinskiptum gírkassa. Í dag aldrei sem áður þurfa aðilar í flutningum að horfa til hagkvæmustu kostanna sem eru í boði þegar kemur að hráolíueyðslu tækja og vörubifreiða, en á því sviði stendur Volvo sem mótorframleiðandi sig frábærlega.

Helsti búnaður í Volvo FH dráttarbifreiðunum.


Ökumannshúsin eru með einni koju, olíumiðstöð fyrir hús og vél, AC loftkælingu, litað öryggisgler, delux loftfjaðrandi fjölstillanlegt sæti með hita, ísskáp og tölvuvog á öxlum. Volvo vörubifreiðarnar eru á loftfjöðrum að framan og aftan, vökvabremsa (retarder) sem vinnur frábærlega vel með I-Shift gírkassanum, færanlegur dráttarstóll, vindkljúfur á topp og niður hliðar og margt fleira.

Brimborg óskar Flytjanda til hamingju með hina fjóra nýju Volvo FH dráttarbifreiðar og óskar þeim jafnframt velfarnaðar og gæfu í flutningum á þjóðvegum landsins.

Nýir Volvo vörubílar


Volvo uppfyllir þarfir þínar fyrir traustan og skilvirkan rekstur með breiðu framboði vörubíla. Volvo vörubílar njóta virðingar og mikillar markaðshlutdeildar um allan heim vegna gæða sinna, áreiðanleika, rekstrarhagkvæmni og endingar. Notendur treysta Volvo. Komdu og ræddu við söluráðgjafa Brimborgar á atvinnutækjasviði. Veldu nýjan Volvo vörubíl frá Brimborg.

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli