Volvo FH16 er nú fáanlegur 750 hestöfl með 3550 Nm togi sem hentar vel í þyngstu og mest krefjandi flutningsverkefnin. Hann verður kynntur til sögunnar rétt í tíma til að fagna 25 ára afmæli 16-lítra vélarinnar.
Árið 1987 var Volvo F16 í fyrsta sinn kynntur til sögunnar með 16-lítra vél, sem var 470 hestöfl. Síðan þá hafa þarfir markaðarins verið í átt til æ öflugari vörubíls.
"Með Volvo FH16 750 við getum boðið viðskiptavinum okkar upp á vörubíl með frábærum eiginleikum, góðri eldsneytisnýtingu og ákaflega lítilli mengun. Hann er án vafa hentugur þar sem þörf er fyrir allra þyngstu og mest krefjandi flutningastarfsemi, "segir Staffan Jufors, forstjóri Volvo Trucks.
Hin nýja vél er byggð á sömu tækni Volvo Trucks og fyrri 16-lítra '700
hestafla dísilvélin, sex strokka línuvél með yfirliggjandi knastás, fjórir ventlar á hvern stokk og beinni innspítingu. Án þess að auka eldsneytiseyðslu, hefur þeim tekist að auka afl og tog vélarinnar. 750 vélin uppfyllir Euro 5 mengunarstaðla
Gírkassinn er Volvo I-Shift sjálfskiptur gírkassi og er staðalbúnaður í Volvo FH16, en honum hefur verið breytt til að takast á við meira tog vélarinnar. Driflínan er fáanleg fyrir sameiginlega heildarþyngd allt að 250 tonn.
Hin nýja 16 lítra 750 hestafla vélin er að skila 2.800 Nm togi við 900 sn/mín, tog kúrfan rís hratt og nær hámarki sínu 3.550 Nm við 1.050 sn/mín og heldur því togi út 1.400 sn/mín. Þetta gerir það mögulegt að viðhalda háum hraða, jafnvel við erfiðustu aðstæður og í miklum brekkum.
"Því meira afl sem þú hefur á lágum snúningi þegar lagt er af stað með þungan farm, þvi minna álag er á vél sem gerir það að verkum að eldsneytiseyðsla verður minni. Þetta skilar okkur þegar upp er staðið frábærum aksturs eiginleikum vörubifreiðarinnar, "segir Hayder Wokil, Framleiðslustjóri hjá Volvo Trucks.
Volvo FH16 750 er ætlaður bæði fyrir virkilega þunga flutninga og verkefni þar sem þörf er á háum meðalhraða í hæðóttu eða mjög hæðóttu landslagi.
"Fyrir flesta FH16 viðskiptavini, er lögð áhersla á að flytja eins mörg tonn og hægt er á sem styðstum mögulegum tíma. Hins vegar þurfa margir viðskiptavinir einnig flutning á ferskum verðmætum afurðum yfir langar vegalengdir þar sem vegir liggja um mismunandi landslag þar sem afhendingu vöru er krafist á réttum tíma," útskýrir Wokil.
Verða fyrstu Volvo FH16 750 hö, vörubílarnir fyrir Evrópu markað framleiddir í byrjun næsta árs þ.e.2012. Til viðbótar við hina nýju 750 hö útgáfu 16-lítra vélarinnar verður hægt að fá 16 lítra vélina í 540, 600 og 700 hestafla útgáfum.
Hlekkur á video um hinn nýja FH16 750
Volvo uppfyllir þarfir þínar fyrir traustan og skilvirkan rekstur með breiðu framboði vörubíla. Volvo vörubílar njóta virðingar og mikillar markaðshlutdeildar um allan heim vegna gæða sinna, áreiðanleika, rekstrarhagkvæmni og endingar. Notendur treysta Volvo. Komdu og ræddu við söluráðgjafa Brimborgar á atvinnutækjasviði. Veldu nýjan Volvo vörubíl frá Brimborg.