Leitaðu

Smelltu á flokk

Lestu fréttirnar 

22. febrúar 2012
Volvo vörubílar | mán. 17. okt. 2011

Olís fær nýjan fagurgrænan Volvo FH 6x4R flutningabíl

Á mynd sem tekin var við afhendingu. Á myndinni eru Ólafur Árnason frá Brimborg og Ólafur Guðmundsson bílstjóri hjá Olís.
Nú nýverið fékk Olíuverslun Íslands afhentan nýjan Volvo FH flutningabíl með vörukassa frá Vögnum og Þjónustu. Verður flutningabifreiðin notuð í það að flytja vörur á afgreiðslustöðvar Olís á norðurleiðinni. Að sjálfsögðu er vörubifreiðin í fallega grænum Olís lit þannig að hún kemur til með að vekja athygli fólks enda stór og mikill flutningabíll á ferðinni. Á hliðum vörukassans eru skemmtilegar merkingar sem vísa til landsþekktra laga. Á vinstri hlið vörukassans er „Hver ekur eins og ljón með aðra hönd á stýri“ eftir Loft Guðmundsson og á hægri hlið er „Hver vegur að heiman er vegurinn heim“ eftir Snorra Hjartarson. Vörukassinn er með heilopnun á báðum hliðum og með 2,5 tonna vörulyftu.

Driflína FH 6x4R

Volvo FH vörubifreiðin er mjög vel útbúin en hún er með D13C 13 lítra vélinni og er 540 hestöfl sem uppfyllir EURO 5 mengunarstaðla. I-Shift 12 gíra gírkassi sér um að koma aflinu út í hjól en vélin er að toga 2600 Nm. Vörubifreiðin er á 8 tonna loftfjöðrum að framan og 21 tonna loftfjöðrum að aftan og er smíðaður til að vera allt að 70 tonna að heildarþunga. Bremsurnar eru mjög öflugar diskabremsur og til viðbótar eru það mótorbremsan og vökvabremsan (retarder) sem eru að skila allt að 620 kW eða 840 hestafla bremsukrafti með I-shift gírkassanum.

Vinnustaður ökumannsins

Ökumannshúsið er Globetrotter og er vel útbúið hvað allan búnað varðar, AC loftkæling og olíumiðstöð sem hitar húsið þegar þarf að gista í vörubílnum. Eitt af megin markmiðum Volvo Truck miðast að því að ökumanninum líði sem allra best í akstri og er það sjónarmið haft að leiðarljósi þegar ökumannshúsið er hannað. Allir stjórntakkar eru innan seilingar, ökumannssæti er fjölstillanlegt með loftfjaðrandi með armpúðum og helstu stillingar fyrir hljómflutningstæki eru í stýri o.m.fl.

Starfsmenn Brimborgar óska Olíuverslun Íslands til hamingju með hinn nýja glæsilega Volvo FH flutningabílinn með ósk um velgengni og gæfu í flutningum á þjóðvegum landsins.

Nýir Volvo vörubílar


Volvo uppfyllir þarfir þínar fyrir traustan og skilvirkan rekstur með breiðu framboði vörubíla. Volvo vörubílar njóta virðingar og mikillar markaðshlutdeildar um allan heim vegna gæða sinna, áreiðanleika, rekstrarhagkvæmni og endingar. Notendur treysta Volvo. Komdu og ræddu við söluráðgjafa Brimborgar á atvinnutækjasviði. Veldu nýjan Volvo vörubíl frá Brimborg.

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli