SCR tækni notast við bætiefnið AdBlue sem er spýtt inn í útblástursgösin áður en þau fara í gegnum SCR hvarfakút. Í hvarfakútnum er nituroxíðunum breytt í skaðlaust niturgas og vatnsgufu – efni sem eru til í náttúrunni.
Kosturinn við SCR aðferðina er að hægt er að nota hana við Euro 4 og Euro 5 vélar. Sem dæmi má nefna að fyrir Euro 5 vélar er meira AdBlue sprautað inn til þess að draga enn frekar úr nituroxíðsmagni. Þegar efninu er bætt á Euro 4 vélar samsvarar það 3-4% af útblástursmagninu og sé því bætt á Euro 5 vélar samsvarar það 5-7% af eldsneytismagninu.
Volvo SCR kerfið samanstendur í meginatriðum af AdBlue geymi sem staðsettur er við hlið hins staðlaða díselgeymis, AdBlue dælu, innsprautunareiningu og SCR hvarfakútur. Þetta felur í sér að vélin sjálf er ekki hluti af ferlinu – nema til þess að skila hámarks brennslugetu.
1. AdBlue geymirinn er staðsettur við hlið hins staðlaða díselgeymis.
2. AdBlue er dælt inn í útblástursgösin í öreindaformi. Nákvæm mæling tryggir bestu mögulegu blöndu fyrir hverja virkni.
3. Í SCR Catalyst er hinu eitruða nituroxíði breytt í niturgas og vatn. Hvarfabúnaðurinn er að fullu hluti af hljóðkútnum.
Samanborið við díseleldsneyti tekur AdBlue ekki mikið pláss. Miðað við 4% blöndu þarf aðeins að bæta 40 lítrum af AdBlue við 1.000 lítra af dísel. Þessi nýting á AdBlue er í alltaf í föstu hlutfalli við díselnýtingu bílsins. AdBlue geymar eru fáanlegir í ýmsum stærðum, frá 30 til 120 lítra og eru geymarnir gerðir úr plasti eða áli.
AdBlue samanstendur af ammóníakhvarfefni – þvagefni – og vatni. Varminn í útblásturskerfinu breytir þvagefninu í ammóníak (NH3) og koltvísýring (CO2). Það er ammóníakið sem er virka efnið og aðalinnihaldsefnið í hvarfaferlinu í SCR hvarfakútnum. Í efnahvarfaferlinu sem á eftir kemur hverfast nituroxíðin (NOx) í niturgas (N2) og vatnsgufu (H2O) en niturgas er náttúrulegur hluti í andrúmsloftinu. Allir mögulegir afgangar af ammóníaki eru fjarlægðir í hinum innbyggða Clean-Up hvarfakút.
Brátt taka gildi í Evrópu strangari reglur um útblástur bíla og til þess að koma á móts við það hefur Volvo ákveðið að taka í notkun tækni sem kallast Selective Catalytic Reduction (SCR). Kerfi þetta gerir það að verkum að magn nituroxíða í útblæstri lækkar verulega vegna eftirmeðferðar á útblæstrinum. SCR tæknin gerir okkur jafnframt kleift að besta hina nýju kynslóð véla okkar þannig að eldsneytisneysla og efnisagnir í útblæstri eru í lágmarki. Frekari upplýsingar um SCR er hægt að fá hjá sölufulltrúa Volvo atvinnutækja hjá Brimborg.